![Landmann FP-I-750 Скачать руководство пользователя страница 22](http://html1.mh-extra.com/html/landmann/fp-i-750/fp-i-750_assembly-and-operating-instructions-manual_3599731022.webp)
IS
22
UPPLÝSINGAR UM UPPSETNINGAR-
OG NOTKUNARLEIÐBEININGARNAR
Áður en byrjað er að nota vöruna skal lesa þessar uppsetningar- og
notkunarleiðbeiningar vandlega og fylgja öryggisleiðbeiningunum
sem þar koma fram. Geymið leiðbeiningarnar á vísum stað til
síðari nota og fyrir aðra notendur. Þær eru hluti af vörunni.
Framleiðandi og innflutningsaðili undanskilja sig allri ábyrgð ef
ekki er farið eftir því sem fram kemur í þessum uppsetningar- og
notkunarleiðbeiningum.
Tákn
Hættutákn: Þetta tákn gefur til kynna mögulega hættu.
Lesið tilheyrandi öryggisleiðbeiningar vandlega og farið eftir
þeim.
Viðbótarupplýsingar
Lesa skal uppsetningar- og notkunarleiðbeiningarnar áður
en byrjað er að nota vöruna!
Ekki má nota vöruna í lokuðu rými og/eða vistarverum, t.d.
byggingum, tjöldum, hjólhýsum, húsbílum eða bátum. Hætta er á
banvænni kolmónoxíðeitrun.
FYRIRHUGUð NOTKUN
■
Hér er um að ræða frístandandi, færanlegt eldstæði sem
er ætlað til notkunar utandyra með náttúrulegum eldivið í
viðeigandi stærð.
■
Varan hentar ekki til matreiðslu.
■
Varan er ekki ætluð til notkunar í atvinnuskyni, heldur eingöngu
til einkanota.
■
Aðeins má nota vöruna í fyrirhuguðum tilgangi og eingöngu
með þeim hætti sem lýst er í þessum uppsetningar- og
notkunarleiðbeiningum. Öll önnur notkun telst vera röng.
■
Ábyrgðin nær ekki yfir ágalla sem rekja má til rangrar
meðhöndlunar, skemmda eða viðgerðatilrauna. Þetta á einnig
við um eðlilegt slit.
UPPLÝSINGAR UM UPPSETNINGU
AÐGÁT!
■
Halda skal plastpokum og plastfilmum frá ungum börnum og
dýrum! Hætta er á köfnun.
• Gakktu úr skugga um að allt fylgi með og að ekkert hafi orðið
fyrir hnjaski við flutning. Ef eitthvað vantar eða hefur orðið fyrir
hnjaski skal snúa sér til notendaþjónustu (sjá öftustu síðuna).
• Fjarlægja skal filmur, límmiða og flutningshlífar af vörunni,
en
alls ekki má fjarlægja upplýsingaplötuna og þær
viðvaranir sem kunna að vera fyrir hendi!
• Gættu þess að nægilegt pláss sé á uppsetningarstað og notaðu
undirlegg ef þess þarf til að verja vöruna eða viðkvæmt gólfefni
fyrir rispum.
• Setja skal vöruna saman á láréttum, sléttum fleti svo hún verði
ekki skökk.
• Setja skal vöruna saman í þeim skrefum sem sýnd eru á
myndunum í þessum uppsetningar- og notkunarleiðbeiningum.
• Gæta skal þess að beita ekki of miklu afli þegar varan er sett
saman.
• Herða skal skrúfur fyrst þéttingsfast og síðan betur að
uppsetningarskrefinu loknu. Annars getur myndast óæskileg
spenna.
• Herða skal rær þar til þær liggja þétt að og snúa þeim síðan
áfram fjórðung úr snúningi. Ekki má herða of mikið!
Kæri viðskiptavinur.
Til hamingju með nýja eldstæðið þitt frá LANDMANN
®
. Þessar uppsetningar- og
notkunarleiðbeiningar leiðbeina þér í gegnum skrefin til að gera nýja eldstæðið þitt frá
LANDMANN
®
tilbúið til notkunar. Þær hafa einnig að geyma mikilvægar upplýsingar um
rétta notkun, örugga meðhöndlun og umhirðu.
Gefðu þér nægan tíma í samsetninguna. Fyrst skaltu útbúa sléttan vinnuflöt
vinnuflöt sem er u.þ.b.
tveir til þrír fermetrar að stærð, taktu alla hlutina úr umbúðunum og hafðu
hafðu verkfærin sem
þarf að nota innan seilingar.
Ef
Ef þú ert með spurningar varðandi eldstæðið eða þarft á frekari aðstoð að halda aðstoðar
þjónustuteymi okkar þig
þig gjarnan. Samskiptaupplýsingar er að finna áá bakhlið þessara
uppsetningar- og notkunarleiðbeininga.
Við vonum að varan eigi eftir að nýtast þér vel!
Með kveðju, starfsfólk LANDMANN®
11811_FP-I-750_M_V1.indb 22
11811_FP-I-750_M_V1.indb 22
08.09.2021 09:59:00
08.09.2021 09:59:00