22
CVK2103X
IS
ELVITA VATNSKETILL
Lestu þessar notkunarleiðbeiningar vandlega áður en vatnsketillinn er tekinn
í notkun. Geymdu notkunarleiðbeiningarnar til framtíðarbrúks síðar meir til að
koma í veg fyrir ranga notkun eða líkamsskaða.
Vatnsketillinn verður í textanum sem á eftir kemur kallaður „tækið“.
ALMENNAR ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
• Tækið má eingöngu tengja við jarðtengda
innstungu með rafspennu upp á 220–240 volt
50/60 Hz.
• EKKI skilja börn eftir án eftirlits nálægt tengdu
tækinu.
• Börn og einstaklingar með skerta líkamlega,
skynjunarlega eða andlega getu eða sem skortir
reynslu og þekkingu geta notað tækið, ef þau
eru undir eftirliti eða fá leiðbeiningar um örugga
notkun tækisins og skilji þær áhættur sem í
henni felst.
• Staðsetja skal tækið á sléttum, þurrum fleti
innandyra og fjarri hitagjöfum.
• Ekki dýfa tækinu ofan í vatn eða svipaða vökva,
t.d. þegar verið er að þvo það.
• Ekki toga í rafmagnssnúruna til að rjúfa
tengingu við straum, heldur skaltu taka í
rafklónna því annars getur snúran skemmst. Ef
einhverjar skemmdir eru á rafmagnssnúrunni
eða tækinu má alls ekki nota það heldur
skal láta gera við það á viðurkenndu