![Grundfos CIM 280-EU GIC Gen2 Instructions Manual Download Page 104](http://html1.mh-extra.com/html/grundfos/cim-280-eu-gic-gen2/cim-280-eu-gic-gen2_instructions-manual_2271045104.webp)
Íslenska (IS)
Öryggisleiðbeiningar
Þýðing á upprunalegu ensku útgáfunni
Þessar öryggisleiðbeiningar gefa fljótlega yfirsýn yfir þær öryggisráðstafanir sem beita þarf í tengslum við notkun
á þessari vöru. Fylgið þessum öryggisleiðbeiningum við meðhöndlun, uppsetningu, notkun, viðhald, þjónustu og
viðgerðir á þessari vöru. Þessar öryggisleiðbeiningar eru viðbótarskjal og allar öryggisleiðbeiningar eru birtar
aftur í viðeigandi köflum í uppsetningar- og notkunarleiðbeiningum. Geymið þessar öryggisleiðbeiningar á
uppsetningarstað til að hægt sé að vísa til þeirra síðar.
Fyrirhuguð notkun
Tengieiningunni er ætlað að styðja gagnaflutning á milli farsímakerfis og Grundfos-vöru.
Öryggi gegn útvarpsbylgjum
Uppsetningaraðilar og notendur verða að fá þessar leiðbeiningar um uppsetningu, notkun og
notkunarskilyrði til að framfylgja reglum varðandi váhrif af völdum útvarpsbylgna.
VIÐVÖRUN
Geislun
Minniháttar eða í meðallagi líkamsmeiðingar
‐
Loftnetið sem notað er fyrir vöruna sem CIM-einingin er tengd við verður að vera uppsett þannig
að minnst 20 cm (0,66 fet) bil sé tryggt á milli þess og fólks og ekki má setja það upp á sama stað
eða nota það samhliða öðru loftneti eða sendi.
Kröfur um loftnet
VIÐVÖRUN
Geislun
Dauði eða alvarleg meiðsl
‐
Samanlögð mögnun snúru- og loftnetslausnar sem notuð er fyrir þessar vöru má ekki fara yfir 2,0
dBi (800, 900, 1800, 2100, 2600 MHz).
Rafhlaðan tengd
VIÐVÖRUN
Eldfimt efni
Dauði eða alvarleg meiðsl
‐
Ekki nota rafhlöðuna við hitastig yfir 45°C.
Rafmagnstenging
VIÐVÖRUN
Rafstuð
Dauði eða alvarleg meiðsl
‐
Takið búnaðinn úr sambandi við rafmagn áður en nokkur vinna fer fram við rafleiðslur. Gangið úr
skugga um að ekki sé hætta á að rafmagni verði hleypt á fyrir slysni.
‐
CIM-eininguna má aðeins tengja við SELV-rafrásir. SELV-vírar mega ekki komast í snertingu við
aðra víra með hærri spennu.
‐
Tengdu CIM eininguna eingöngu við Grundfos Host vörur með sérstöku CIM viðmóti.
VIÐVÖRUN
Eldfimt efni
Dauði eða alvarleg meiðsl
‐
Fylgja verður neðangreindum öryggisráðstöfunum til hlítar þar sem röng meðhöndlun lithium-ion-
rafhlöðunnar getur valdið meiðslum eða skemmdum af völdum rafvökvaleka, hitaíkveikju eða
sprengingar.
104
Íslenska (IS)
Summary of Contents for CIM 280-EU GIC Gen2
Page 2: ......
Page 9: ...See also end of life information at www grundfos com product recycling 9 English GB...
Page 12: ...1 2 Grundfos www grundfos com product recycling 12 BG...
Page 40: ...1 2 Grundfos www grundfos com product recycling 40 GR...
Page 71: ...RU Grundfos CIM 20 0 66 2 0 800 900 1800 2100 2600 45 C CIM CIM Grundfos CIM 71 RU...
Page 73: ...1 2 Grundfos www grundfos com product recycling 73 RU...
Page 86: ...UA Grundfos CIM 20 0 66 2 0 800 900 1800 2100 2600 45 C CIM SELV SELV CIM Grundfos CIM 86 UA...
Page 88: ...1 2 Grundfos www grundfos com product recycling 88 UA...
Page 89: ...CN RF RF CIM 20 cm 0 66 2 0 dBi 800 900 1800 2100 2600 MHz 45 C CIM SELV SELV CIM CIM 89 CN...
Page 91: ...www grundfos com product recycling 91 CN...
Page 92: ...JP CIM 20 cm 0 66 2 0 dBi 800 900 1800 2100 2600 MHz 45 CIM SELV SELV CIM CIM 92 JP...
Page 94: ...www grundfos com product recycling 94 JP...
Page 97: ...www grundfos com product recycling 97 KO...
Page 101: ...www grundfos com product recycling 103 AR...
Page 103: ...AR CIM 20 0 66 2 0 dBi 800 900 1800 2100 2600 45 CIM CIM Grundfos Host CIM 101 AR...