24
25
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
ELVITA EGGJASUÐUTÆKI
Lestu þessar notkunarleiðbeiningar áður en þú tekur eggjasuðutækið í notkun.
Geymdu notkunarleiðbeiningarnar til framtíðarbrúks síðar meir til að koma í veg fyrir
ranga notkun eða líkamsskaða.
Í þessari handbók verður vísað til eggjasuðutækisins sem „tækið“.
ALMENNAR ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
• Tækið má eingöngu tengja við jarðtengda
innstungu með rafspennu upp á 220–240 V, 50/60
Hz.
• Skiljið aldrei eftir börn umsjónarlaus nálægt tengdu
tækinu.
• Börn og einstaklingar með skerta líkamlega,
skynjunarlega eða andlega getu eða sem skortir
reynslu og þekkingu geta notað tækið, ef þau
eru undir eftirliti eða fá leiðbeiningar um örugga
notkun tækisins og skilji þær áhættur sem í henni
felst.
• Staðsetja skal tækið á sléttum, þurrum fleti
innandyra og fjarri hitagjöfum.
• Ekki dýfa tækinu ofan í vatn eða svipaða vökva, t.d.
þegar verið er að þvo það.
• Ekki toga í rafmagnssnúruna til að rjúfa tengingu
við straum, heldur skaltu taka í rafklónna því
annars getur snúran skemmst. Ef einhverjar
skemmdir eru á rafmagnssnúrunni eða tækinu má
alls ekki nota það heldur skal láta gera við það á
viðurkenndu þjónustuverkstæði.