136
Viðhald tækisins
Hreinsaðu tækið eingöngu með mjúkum og þurrum klút.
Þrif á handleggsborða
Fjarlægið bletti gætilega af handleggsborðanum með rökum klút og
sápu.
Nákvæmnismæling
Ráðlegt er að sannreyna nákvæmni tækisins á 2 ára fresti og einnig
ef það verður fyrir hnjaski (t.d. dettur í gólfið). Vinsamlega hafðu
samband við Artasan ehf., umboð Microlife á Íslandi, og pantaðu
nákvæmnismælingu á tækinu.
Förgun
Farga ber rafhlöðum og rafeindabúnaði í samræmi við
gildandi reglur á hverjum stað en ekki með venjulegu heimilis-
sorpi.
10.Ábyrgð
Á tækinu er
5 ára ábyrgð
frá kaupdegi. Á þessu ábyrgðartímabili
mun Microlife meta mælinn og gera við eða skipta um gallaða vöru
án endurgjalds.
Ábyrgðin fellur úr gildi ef tækið hefur verið opnað eða breytingar
gerðar á því.
Eftirfarandi atriði eru undanskilin ábyrgðinni:
Flutningskostnaður og áhætta vegna flutnings.
Tjón af völdum rangrar notkunar eða ekki farið eftir
notkunarleiðbeiningunum.
Tjón af völdum lekandi rafhlaðna.
Tjón af völdum slyss eða misnotkunar.
Pökkun/ geymsluefni og notkunarleiðbeiningar.
Reglulegt eftirlit og viðhald (kvörðun).
Aukahlutir og hlutir sem eyðast: Rafhlöður.
Handleggsborðinn fellur undir ábyrgð á virkni (stífni blöðru) í 2 ár.
Ef þörf er á ábyrgðarþjónustu, vinsamlegast hafðu samband við sölu-
aðila þaðan sem varan var keypt eða þjónustuaðila Microlife. Þú
getur haft samband við þjónustuaðila Microlife í gegnum vefsíðuna
okkar: www.microlife.com/support
Bætur eru takmarkaðar við verðmæti vörunnar. Ábyrgðin verður veitt
ef heildarvörunni er skilað með upprunalegum reikningi. Viðgerð eða
skipti innan ábyrgðar lengir ekki eða endurnýjar ábyrgðartímann.
Lagalegar kröfur og réttindi neytenda eru ekki takmarkaðar af þessari
ábyrgð.
Содержание BP W1 Basic
Страница 140: ...138 ...