
Appendix
8
9
Uppsetning á keðjum
Þegar keðjur eru settar á skal fylgja
leiðbeiningum framleiðanda og herða
keðjurnar eins mikið og unnt er.
Þegar keðjur hafa verið settar á skal
aka hægt. Ef hljóð heyrist sem bendir
til að keðjurnar séu í snertingu við
yfirbyggingu eða undirvagn er rétt að
nema staðar og herða keðjurnar. Ef
snerting virðist enn eiga sér stað skal
hægja aksturinn þar til hljóðið þagnar.
Takið keðjurnar niður um leið og
komið er á rudda og snjólausa vegi.
VIÐVÖRUN -
Keðjur á
hjólbarða
• Notkun keðja getur skert
aksturs- eiginleika ökutækisins.
• Akið ekki hraðar en 30
km/klst.
eða samkvæmt
ráðlögðum hámarkshraða
framleiðanda keðjanna, hvort
sem reynist lægra.
• Akið gætilega og sneiðið hjá
þústum,
holum,
kröppum
beygjum og öðrum hættum á
veginum, sem gætu valdið
hristingi ökutækisins.
• Forðist krappar beygjur eða
læsta hemlun.
VARÚÐ
• Séu snjókeðjur af rangri stærð
eða rangt upp settar geta þær
valdið skemmdum á hemlalögn,
fjöðrun, yfirbyggingu og hjólum
ökutækisins.
• Hvenær sem hljóð bendir til
þess að keðjurnar sláist við
ökutækið skal stöðva akstur
og herða keðjurnar.
VARÚÐ
• Gætið þess að snjókeðjurnar
séu af þeirri stærð og gerð sem
hæfir hjólbörðunum. Notkun
snjókeðja af rangri gerð getur
valdið skemmdum á
yfirbyggingu og fjöðrun
ökutækisins og kann að falla
utan ábyrgðartryggingar
söluaðila ökutækisins. Þá geta
festikrókar keðjanna skemmst
vegan núnings við íhluti
ökutækisins og snjókeðjurnar
losnað af hjólbarðanum. Gætið
þess að snjókeðjurnar séu með
SAE-vottun í S-flokki.
• Eftir um það bil 0,5-1 km
akstur skal ævinlega skoða
keðjurnar aftur til að tryggja að
þær hafi verið settar upp á
réttan og öruggan hátt. Herðið
keðjurnar eða setjið þær aftur
á ef þær hafa losnað.
VIÐVÖRUN
-
Uppsetning á keðjum
Þegar snjókeðjur eru settar upp
skal leggja ökutækinu á sléttum
fleti fjarri umferð. Kveikið á
viðvörunarljósum ökutækisins
og setjið þríhyrningslaga
viðvörunarskilti upp fyrir aftan
ökutækið, ef það er tiltækt. Hafið
ökutækið ævinlega í stöðuhemli
og drepið á vélinni áður en
snjókeðjur eru settar upp.
Summary of Contents for Carens 2016
Page 348: ...4 253 Features of your vehicle CD Player for RDS model AM111A4EE...
Page 351: ...Features of your vehicle 256 4 CD Player AM111A4GG AM111A4GN AM111A4GE AM111A4GL...
Page 556: ...What to do in an emergency 24 6 EC Declaration of Conformity for Jack JACKDOC14F...
Page 702: ...Appendix Bulgarian version 9 2 Vetrarakstur Icelandic version 9 6 9...
Page 703: ...Appendix 2 9 BULGARIAN VERSION 1VQA3005...
Page 704: ...9 3 Appendix 15 1VQA3007...
Page 705: ...Appendix 4 9 S SAE 0 5 1...
Page 706: ...9 5 Appendix 30...
Page 710: ...Index I I...