10
Notkunarleiðbeiningar
Veggklæðningin er úr gegnheilu keramik
án kvoðu eða fjölliða. Hráefninu er þjappað
saman í miklum hita. Útkoman verður
yfirborð sem er varið fyrir blettum og rispum
og er auðvelt í þrifum.
Umhirða og viðhald
• Sjóðandi vatn og slettur frá heitum mat
skemma ekki veggklæðninguna. Notaðu
rakan og mjúkan klút fyrir dagleg þrif og
milt hreinsiefni eða sápu. Þurrkaðu með
hreinum klút eða eldhúspappír.
• Veggklæðningin þolir flest hreinsiefni
fyrir heimili og þar sem yfirborðið er ekki
gljúpt sýgur það ekki í sig vökva sem gæti
skilið eftir sig bletti. Ef yfirborðið er of lengi
í snertingu við hreinsiefni gæti það valdið
skaða eða breytt lit á yfirborðinu. Skolaðu
strax af með vatni til að draga úr áhrifum af
hugsanlega skaðlegum efnum.
• Forðastu beina snertingu við opin eld.
• Ekki nota keramikhníf eða aðra
keramikhluti beint á yfirborð
klæðningarinnar.
ÍSLENSKA