![Electrolux LRS2DE39W User Manual Download Page 30](http://html.mh-extra.com/html/electrolux/lrs2de39w/lrs2de39w_user-manual_2383728030.webp)
• Til að flýta fyrir kælingu matvara er
æskilegt að kveikja á viftunni. Virkjun
DYNAMICAIR gerir innra hitastigið
einsleitara.
• Skoðaðu alltaf „best fyrir“ dagsetningu
varanna til að vita hversu lengi á að
geyma þær.
7. UMHIRÐA OG HREINSUN
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um öryggismál.
7.1 Innra byrði hreinsað
Áður en heimilistækið er notað í fyrsta
sinn, skal þvo innri og alla innri fylgihluti
með volgu vatni og hlutlausri sápu til að
losna við dæmigerða lykt af nýrri vöru og
þurrka svo vandlega.
VARÚÐ!
Ekki nota þvottaefni,
slípiduft, klór eða
olíublönduð hreinsiefni, þar
sem það skemmir áferðina.
VARÚÐ!
Aukahlutir og hlutar
heimilistækisins eru ekki
ætlaðir fyrir uppþvottavélar.
7.2 Reglubundin hreinsun
Hreinsa þarf búnaðinn reglulega:
1. Hreinsaðu innra byrðið og aukahluti
með volgu vatni og hlutlausri sápu.
2. Skoðaðu hurðarþéttingar reglulega
og strjúktu af þeim svo þær séu
hreinar og lausar við óhreinindi.
3. Skolaðu og þurrkaðu vandlega.
7.3 Ísskápurinn affrystur
Frostið er losað sjálfkrafa úr eimi
kælihólfsins við eðlilega notkun. Vatnið
eftir affrystinguna lekur út í gegnum trekt
í sérstakt ílát aftan á heimilistækinu fyrir
ofan þjöppuna, þar sem það gufar upp.
Það er mikilvægt að hreinsa reglulega
niðurfallsgatið fyrir affallsvatnið í miðri rás
kælihólfsins til að koma í veg fyrir að
vatnið flæði upp úr og leki á matinn inni í
kælinum.
7.4 Tímabundið ekki í notkun
Þegar heimilistækið er ekki í notkun til
lengri tíma, skal grípa til eftirfarandi
ráðstafana:
1. Aftengja tækið frá rafmagni.
2. Fjarlægja allan mat.
3. Hreinsa heimilistækið og alla
aukahluti þess.
4. Hafa skal hurðina opna til að koma í
veg fyrir vonda lykt.
8. BILANALEIT
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um öryggismál.
www.electrolux.com
30