![AEG KME768080T User Manual Download Page 237](http://html1.mh-extra.com/html/aeg/kme768080t/kme768080t_user-manual_3048548237.webp)
•
Þrífa þarf heimilistækið reglulega og fjarlægja allar
matarleifar.
•
Notaðu ekki gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
•
Notaðu ekki sterk tærandi hreinsiefni eða beittar málmsköfur
til að hreinsa glerhurðina þar sem slíkt getur rispað
yfirborðið, sem getur aftur leitt til þess að glerið brotnar.
•
Sé heimilistækinu ekki haldið hreinu getur það leitt til slits á
yfirborðsfletinum sem getur haft neikvæð áhrif á líftíma
heimilistækisins og hugsanlega haft hættu í för með sér.
2. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
2.1 Uppsetning
AÐVÖRUN!
Einungis löggildur aðili má setja upp þetta heimilistæki.
• Fjarlægðu allar umbúðir.
• Ekki setja upp eða nota skemmt heimilistæki.
• Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgja með heimilistækinu.
• Alltaf skal sýna aðgát þegar heimilistækið er fært vegna þess að það er þungt. Notaðu alltaf
öryggishanska og lokaðan skóbúnað.
• Dragðu heimilistækið ekki á handfanginu.
• Settu heimilistækið upp á öruggum og hentugum stað sem uppfyllir uppsetningarkröfur.
• Haltu lágmarksfjarlægð frá öðrum heimilistækjum og einingum.
• Áður en þú setur upp ofninn skaltu athuga hvort hurðin opnast án heftingar.
• Heimilistækið er útbúið rafstýrðu kælikerfi. Það þarf rafstraum til að geta gengið.
• Innbyggða einingin verður að standast kröfur DIN 68930.
Lágmarkshæð skáps (Lágmarkshæð skáps undir
vinnuborði)
444 (460) mm
Breidd skáps
560 mm
Dýpt skáps
550 (550) mm
Hæð heimilistækis að framan
455 mm
Hæð heimilistækis að aftan
440 mm
Breidd heimilistækis að framan
595 mm
Breidd heimilistækis að aftan
559 mm
237/344
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Summary of Contents for KME768080T
Page 343: ......